Ísafirđi, 18. júní 2008


Fréttatilkynning


Ađalmót Sjóstangaveiđifélags Ísfirđinga 4. og 5. júlí 2008

Ađalmót Sjóstangaveiđifélags Ísfirđinga verđur haldiđ föstudaginn 4. júlí og laugardaginn 5. júlí og er mótiđ hiđ fimmta í röđ átta móta sem haldin eru víđs vegar á landinu og er liđur í Íslandsmeistaramótinu í sjóstangaveiđi
Auk verđlauna fyrir sigur í sveita- og einstaklingskeppni verđa veitt verđlaun fyrir stćrstu fiska einstakra tegunda, fyrir stćrsta fisk mótsins, til aflahćsta heimamannsins, fyrir flestar veiddar tegundir, hćstu međalţyngd og til ţriggja fengsćlustu skipstjórana. Búast má viđ ađ veiđa ţorsk, ufsa, ýsu, karfa, steinbít, sandkola, lúđu, lýsu og marhnút. Ekki er ólíklegt ađ skötuselur, makríll og flundra veiđist en ţessar tegundir veiđast í auknu mćli hér viđ strendur landsins í kjölfar hlýnandi sjávar

Búast má viđ sjóstangaveiđimönnum frá öllum landshlutum enda Vestfirđir vinsćlir fyrir sjóstangaveiđi

Róiđ verđur frá Bolungarvík og látiđ úr höfn kl. 6.00 báđa dagana. Fyrri daginn er veitt til kl. 14.00 en til kl. 13.00 seinni daginn. Mótssetning verđur fimmtudaginn 3. júlí kl. 20.30 í kránni Einarshúsi í Bolungarvík
Ţátttökugjald er 15.000 kr. og er innifaliđ veislumáltíđ og miđi á dansleik. Skráning er hjá Ţóri Sveinssyni í síma 896 3157 og Sigríđi Jóhannsdóttur í síma 897 6782


Stjórn Sjóís