Ísafirði, 30. maí 2007
Innanfélagsmót Sjóís frá Bolungarvík  


 
Innanfélagsmót Sjóstangaveiðifélags Ísfirðinga verður haldið laugardaginn 9. júní nk.
Mótið er hugsað sem æfing fyrir félagsmenn og til þess að þjálfa nýliða.
Róið verður frá Bolungarvík og látið úr höfn kl. 9.00 og komið að landi um kl. 15.00.

Þátttökugjald er ekkert og eru nýir veiðifélagar velkomnir,
 en reyndir veiðimenn munu aðstoða og leiðbeina þeim sem ekki hafa prófað að veiða með veiðistöng úti á sjó.
Upplýsingar og skráning í mótið er hjá Þóri Sveinssyni í síma 456 3298, 896 3157
og Sigríði Jóhannsdóttur í síma 897 6782.

Stjórn Sjóís.